Skilmálar

Skilareglur Bónus

Kaupandi hefur 14 daga frá pöntun að skipta vörunni að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Við skil á vöru er miðað við verð hennar þann dag sem hún var keypt. Sé viðkomandi vara á útsölu eða á sértilboði við vöruskil eða skipti, er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. 

Afhendingar

Um vörur sem dreift er af Dropp og Flytjanda gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.

Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent frá okkur til flutningsaðila og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila. 

Endurgreiðsla

Vörur sem keyptar eru í vefverslun og eru sendar til kaupanda, er hægt að fá endurgreiddar. Kaupandi hefur 7 daga til að fara fram á endurgreiðslu, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ef senda þarf vöru til baka vegna vöruskila, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði.

Verð á þessari síðu

Öll verð í vefverslun innihalda virðisaukaskatt og eru í íslenskum krónum. Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.

Persónuvernd:

Farið er með allar persónuupplýsingar sem Bónus móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang nema annað sé sérstaklega tekið fram. 

Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda . 

Þjónusta og upplýsingar

Kaupanda er bent á að senda okkur skilaboð með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin, í gegnum vefsíðu okkar, með því að smella á flipann „Hafa Samband“ til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur ekki leitað í verslun okkar til að fá svör og er því bent á að hringja í aðalsímanúmer okkar 5279000 þar sem honum verður vísað á réttan stað.

Annað:

Bónus tekur ekki ábyrgð á röngum verðum sem kunna að vera inná síðunni. Bónus áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt. 

Útgáfa skilmála númer: 1.0